Í dag 24. febrúar varð Pétur 2. ára og héldum við upp á afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Pétur málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Pétri og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.