Elsku Petrea Jenný okkar varð þriggja ára laugardaginn 24. september. Við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum 22. september. Hún málaði og skreytti kórónu, við sungum fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú. Hún bauð svo upp á ávexti úr ávaxtakörfunni okkar. Eftir þetta fór hún út í garð og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Petreu Jennýju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju.
Karlsrauðatorg 23 | 620 Dalvík
|
Opnunartími frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi barna: 460-4950 / krilakot@dalvikurbyggd.is