Föstudaginn 3. júní varð Patryk 6 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Kátkoti þann dag.
Hann bjó sér til glæsilega kórónu í tilefni dagsins,við sungum fyrir hann afmælissönginn,
hann blés á kertin 6, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni í útiveru
og svo flaggaði hann að sjálfsögðu íslenska fánanum.
Við óskum Patryk og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.