Í dag 3. júní varð Patryk 4 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti í dag.
Patryk málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Patryk og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.