Þann 3. júní varð Patryk 3 ára og héldum við upp
á afmælið hans þann dag hér í Krílakoti..
Patryk málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Patryk öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Patryk og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.