Pálmi Þór 3 ára

Pálmi Þór 3 ára

Þann 18. nóvember verður Pálmi Þór 3. ára og héldum

við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.

Pálmi Þór málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Pálmi Þór öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Pálma Þór og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.