Óskum eftir gömlum handklæðum og sængurverum

Óskum eftir gömlum handklæðum og sængurverum

Kæru foreldrar, afar og ömmur. Getur verið að þið eigið gömul handklæði og/eða sængurver sem þið eruð hætt að nota og hafa þjónað sínum tilgangi? Ef svo er þá þætti okkur hér á Krílakoti vænt um ef að við fengjum að nýta þau í þvottastykki og smekki fyrir börnin okkar 

Með því erum við ekki einungis að nýta verðmæti sem liggja víða ónotuð eða enda í ruslinu, heldur er þetta líka umhverfisvænt.