Öskudagur 2013

Öskudagur 2013

Komið sæl

Í dag slógum við köttinn úr tunnunni/pokanum, sungum saman og dönsuðum.

Það voru hinar ýmsu verur sem birtust hér í morgun en allir glaðir og kátir og létu sér ekki bregða þó svo nornir, trúðar eða önnur fyrirbæri væru á ferli. Nokkrir foreldrar kíktu við hjá okkur en lítið var um að börn utan úr bæ kæmu til okkur til að syngja sér inn gotterí.

Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti