Þann 16. september varð Óskar Valdimar 3. ára og héldum við upp á afmælið hans í dag 19. sept
Óskar Valdimar málaði sér kórónu og skreytti hana. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og
hann blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð hann öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Óskari Valdimar og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.