Opin vika, breyting á dagskrá

Opin vika, breyting á dagskrá

Samkvæmt því skipulagi sem sent var heim á föstudaginn yfir opnu vikuna var ætlunin í dag að halda upp á dag vinaskóla okkar í Búlgaríu sem helgaður er Heilögum Lazariusi. Nú er hins vegar ljóst að við þurfum að fresta því til morgundagsins. Og í framhaldi af því mun hópastarf hjá Hólakoti og Skakkalandi sem á að vera á morgun færast yfir á miðvikudaginn. Við vonum að þetta komi ekki gestum okkar illa.