Opin vika 3.-7. maí

Opin vika 3.-7. maí

Næstkomandi viku, 3. - 7. maí verður opin vika hér á Krílakoti. Við bjóðum foreldra, systkini, afa og ömmur, frænkur og frændur og aðra áhugasama velkomna í heimsókn til okkar. Við opnum dyrnar og bjóðum áhugasömum að kíkja inn, fylgjast með og taka þátt í starfinu. Hægt verður að heimsækja skólann á opnunartíma, eða frá kl. 7:30 til 16:15 og taka þátt í leik og starfi með börnum og kennurum. Fólki er velkomið að kíkja til okkar oftar en einu sinni.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.