Nýr leikskólakennari kemur til starfa

Eins og flestir vita á hún Ágústa, deildarstjóri á Hólakoti, von á barni. Hún hefur nú skv. læknisráði farið í veikindaleyfi og fer svo í framhaldi af því í barneignarleyfi í janúar. Og mun Gerður Olofsson leysa hana af. Gerður mun verða þessa viku hjá okkur frá 8-13, en mun svo byrja í fullu starfi strax eftir áramót. Um leið og við bjóðum Gerði velkomna til starfa, óskum við Ágústa alls hins besta.