Námsmannaafsláttur

Námsmannaafsláttur

Ég vil vekja athygli þeirra foreldra sem eru í námi á 13. gr. innritunar- og innheimtureglna leikskóla í Davlíkurbyggð:

Námsmannaafsláttur er 25% af leikskólagjaldi þess barns sem ekki fær neinn annan afslátt. Þann afslátt fá þeir foreldrar sem annað eða bæði stunda í það minnsta 75% nám. Námsmenn skulu staðfesta nám sitt með staðfestingu viðkomandi skóla á námsárangri í lok annar og fá þá greiddan afsláttinn næsta mánuð/mánuði. Námsmannaafsláttur er ekki greiddur tímabilið 1. júní - 31. ágúst.

Til að hægt sé að ganga frá afsláttargreiðslum, vil ég biðja þá foreldra sem hafa nú í haust stundað 75% nám eða meira, að koma með staðfestingu á námsárangri þegar hann liggur fyrir.

                         Dagbjört