Mihaels 5 ára

Mihaels 5 ára

Í dag 16. nóvember varð Mihaels 5 ára og af því tilefni

héldum við upp á afmælið hans hér í Kátakoti í dag.

Mihaels  bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 5 og

bauð svo öllum í Sólkoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.

Við óskum Mihaels og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.