Mihaels 3 ára

Mihaels 3 ára

Í dag 14. nóvember héldum við upp á 3 ára afmælið hans Mihaels en hann á afmæli þann 16. nóvember . 

Mihaels málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Mihaels öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Mihaels og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.