Í dag 16. nóvember varð Mihaels 2 ára og héldum við upp á afmælið hans í dag í Krílakoti.
Mihaels málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.
Eftir sönginn bauð Mihaels öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Mihaels og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.
Karlsrauðatorg 23 | 620 Dalvík
|
Opnunartími frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi barna: 460-4950 / krilakot@dalvikurbyggd.is