Menningarráð styrkir tónlistarnám leikskólabarna

Frá því er ánægjulegt að segja að Menningarráð Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 11. desember sl. að stykja Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar að upphæð 350.000 kr. til áframhaldandi uppbyggingu á tónlistarnámi fyrir leikskólabörn.

Þar með gefst Tónlistarskólanum og leikskólum Dalvíkurbyggðar tækifæri til að halda áfram því samstarfi sem hóft í haust sem felst í því að Þura fer á milli leikskólana og er með vikulegar tónlistarstundir með 3 elstu leikskólaárgöngunum.