Þann 13. júlí á Maya Alexandra 6 ára afmæli og af því tilefni héldum við veislu hér í Kátakoti.
Maya Alexandra bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6 og
bauð svo öllum í Kátakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni og popp.
Að veislu lokinni fór hún út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Mayu Alexöndru og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.