Maron 3. ára

Maron 3. ára

Þann 14. mars átti hann Maron 3. ára afmæli en vegna veikinda hjá honum gátum við ekki haldið upp á það þann dag. Í dag 17. mars héldum við upp á afmælið hans. Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Maron öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Við óskum Maroni og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.