Málfarsvilla

Komið sæl

Eitthvað var leikskólastýran að flýta sér við prentun fréttabréfs septembermánaðar því þar er að finna óskemmtilega málfarsvillu sem mikilvægt er að leiðrétta. Í bréfinu stóð "okkur hlakkar til" sem er auðvitað ekki rétt því "við hlökkum til" er það sem skal standa. Afsakið þessa fljótfærnisvillu en hér er fréttabréfið lagfært. Þakka eftirtektarsamri konu fyrir þessa ábendingu.

Bestu kveðjur

Drífa