Í dag héldum við upp á 2 ára afmælið hans Magnúar Darra.
Magnús Darri málaði á flottu kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Magnúsi Darra og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.
Karlsrauðatorg 23 | 620 Dalvík
|
Opnunartími frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi barna: 460-4950 / krilakot@dalvikurbyggd.is