Magdalena 4. ára

Magdalena 4. ára

Í dag héldum við upp á 4. ára afmælið hennar Magdalenu. Hún málaði sér kórónu í öllum regnbogans litum og skreytti hana.  Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur. Eftir sönginn bauð Magdalena öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Magdalenu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.