Lovísa Lilja 2 ára

Lovísa Lilja 2 ára

Í dag 28. október átti Lovísa Lilja 2 ára afmæli

og héldum við upp á daginn hennar í dag hér í Krílakoti.

Lovísa Lilja málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin tvö.

Eftir sönginn bauð Lovísa Lilja öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Lovísu Lilju og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.