Lovísa Lea 5 ára

Lovísa Lea 5 ára

Þann 14. apríl varð Lovísa Lea 5 ára. Hún byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu.  Síðan í hádeginu var hún þjónninn og eftir hádegi bauð hún börnunum upp á ávexti.  Einnig fór hún út og flaggaði og síðan sungu allir fyrir hana í tilefni dagsins.