Í dag héldum við upp á 4 ára afmælið henna Lovísu hér í Krílakoti..
Lovísa málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Lovísa öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Lovísu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.