Sími: 460 4950
Nemendur á elsta leikskólastigi Dalvíkurbyggðar bjóða fjölskyldum sínum, vinum, vandamönnum og öllum íbúum Dalvíkurbyggðar á opnun listasýningar sinnar í Menningarhúsinu Bergi. Opnunin er laugardaginn 26. Febrúar kl. 14.00- 16.00 – léttar veitingar í boði. Öll verkin verða til sölu á litlar 2.000.- krónur og rennur ágóðinn til foreldrafélagsins sem mun sjá um að nýta peninginn þannig að listamennirnir sjálfir njóti góðs af. Listasýningin er samstarfsverkefni Safna Dalvíkurbyggðar og leikskólanna. Börnin heimsóttu öll Byggðasafnið Hvol og fengu kynningu á safninu og fjölbreyttum safnkosti þess. Að kynningarferðinni lokinni fengu börnin að velja sér einn mun til að nota sem efnivið í listaverkið sitt. Listræn útfærsla er alfarið í höndum þessara litlu listamanna og meðfylgjandi við hvert verk er túlkun þeirra á verkinu með þeirra orðum. Sjón er sögu ríkari. Sjáumst við hátíðlega listaopnun listamanna framtíðarinnar í Menningarhúsinu Bergi!