Leikskólabörn syngja á sviði Vináttukeðjunnar

Leikskólabörn syngja á sviði Vináttukeðjunnar

Líkt og síðastliðið ár munu leikskólabörn í Dalvík syngja á Vináttukeðjunni. Við munum syngja lögin Vinur minn og Sól, sól skín á mig.

Foreldrar leikskólabarna, á Krílakoti, Kátakoti og Leikbæ, eru beðnir um að mæta með börnum sínum á Krílakot kl. 17:00 á föstudaginn 7. ágúst. Þar munum við æfa okkur aðeins áður en stigið verður á sviðið. Börnin munu síðan koma fram á sviði Vináttukeðjunnar í kirkjubrekkunni kl. 18:05.

Þau börn sem hafa lokið sinni leikskólagöngu, þ.e. eru að fara í grunnskóla í haust, eru að sjálfsögðu velkomin!

Hér eru textar við lögin.