Lárus Anton 4. ára

Lárus Anton 4. ára

Í dag (17.09) héldum við upp á 4. ára afmælið hans Lárusar Antons.  Það fyrsta sem hann gerði var að búa sér til kórónu. Síðan fór hann út og flaggaði og bauð öllum upp á ávexti. Í ávaxtastundinni sungu allir afmælissönginn fyrir hann í tilefni dagsins. Einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum honum til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.