Kristrún Lea 2 ára

Kristrún Lea 2 ára

Í dag, 14. október varð Kristrún Lea 2 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í dag.

Kristrún Lea málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir

 sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Kristrúnu Leu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.