Kristrún 60 ára

Kristrún 60 ára

Þann 30. september sl. varð hún Kristrún 60 ára. Kristrún hefur kennt við Árskógarskóla lengst allra kennara sem nú starfa við skólann eða síðan 1973 að undanskildum tveimur árum. Í tilefni af tímamótunum færði starfsfólk Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og nemendur Árskógarskóla henni gjafir á bókasafni skólans. Á meðfylgjandi mynd má sjá afmælisbarnið með gjafirnar sem Gísli Bjarnason skólastjóri afhenti henni. Við hér í skólanum óskum Kristrúnu enn og aftur til hamingju með daginn.