Kristján Máni 2 ára

Kristján Máni 2 ára

Þann 1. nóvember varð Kristján Máni 2 ára og héldum við upp á afmælið hans mánudaginn 2. nóvember.   Hann byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu, bauð öllum upp á ávexti og svo sungu allir afmælissönginn í tilefni dagsins. Einnig fór hann út og flaggaði og var þjónn dagsins.  Við óskum honum innilega til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.