Konráð Ari 4.ára

Konráð Ari 4.ára

Á föstudaginn héldum við upp á 4. ára afmælið hans Konráðs Ara. Hann átti afmæli laugardaginn 13. febrúar. Það fyrsta sem hann gerði var að setja upp kórónuna sem hann var búinn að búa sér til. Síðan fór hann út og flaggaði og bauð öllum upp á ávexti. Í ávaxtastundinni sungu allir afmælissönginn fyrir hann í tilefni dagsins. Einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum honum til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.