Í dag þann 29. ágúst varð Kolbrún Svana 4 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Kátakoti í dag.
Kolbrún Svana málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum í Mánakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Kolbrúnu Svönu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Kátakoti.