Þann 30. september varð Klara Mist 4 ára og
héldum við upp á daginn hennar hér í Kátakoti þann dag.
Klara Mist málaði á kórónuna sína og við
flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum í Mánakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Klöru Mist og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Kátakoti.