Kátakot fór í klifurvegginn

Kátakot fór í klifurvegginn

Komið þið sæl

Eins og fram hefur komið þá urðum við að fresta vetrarleikunum .

Við ákváðum að gera bara gott úr hlutunum og skella okkur í heimsókn í klifurvegginn.

Mánakot fór kl 9 - 10 og Sólkot 10 - 11,  helmingur fór  inn í klifurvegginn og hinn í leiki

og síðan var skipt. 5. bekkur kom og aðstoðaði okkur og þökkum við þeim kærlega fyrir hjálpina.

Allir skemmtu sér konunglega og voru það þreyttir og

glaðir krakkar sem gengu í Kátakot um hádegisleyti.

Myndir komnar á heimasíðuna.