Í dag 15. febrúar á hún Karítas Lind 4. ára afmæli og að því tilefni héldum við upp á daginn hennar.
Karítas Lind málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Karítas Lind öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Karítas Lind og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.