þann 23. desember verður Karítas 3 ára og héldum við uppá afmælið hennar í dag hér í Krílakoti.
Karítas málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Karítas öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Karítas og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.