Kári Eyfjörð 5 ára

Kári Eyfjörð 5 ára

Á sunnudaginn, 3. desember, verður Kári Eyfjörð 5 ára. Við héldum upp á afmælið hans í leikskólanum í dag. Hann bjó til glæsilega kórónu, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni, blés á kertin 5 eftir að við sungum fyrir hann afmælissönginn, flaggaði íslenska fánanum og var umsjónarmaður dagsins. Við óskum Kára Eyfjörð og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.