Kamil 4 ára

Kamil 4 ára

Í dag 5. júlí varð Kamil 4 ára og héldum við upp

á afmælið hans í dag hér í Krílakoti..

Kamil málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Kamil öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Kamil og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.