Jón Steinar 6 ára

Jón Steinar 6 ára

Þann 11. mars varð Jón Steinar 6 ára.  Hann byrjaði á því að setja upp kórónuna sem hann bjó til sjálfur deginum áður og svo í ávaxtastund bauð hann upp á ávexti og blés á kertin, allir sungu svo fyrir hann í tilefni dagsins.  Jón Steinar fór svo út og flaggaði með Ingu þegar inn var komið valdi hann fyrstur í valinu.  Í hádeginu var hann þjónninn.  Við óskum honum til hamingju með afmælið frá öllum á Hólakoti.