Jólabingó í Árskógarskóla

Þegar jólin nálgast með þeim spenningi og eftirvængingu sem þeim fylgja er ágætt að brjóta skólastarfið aðeins upp. Hér í Árskógarskóla söfnuðust allir nemendur saman á miðvikudagsmorgun og spiluðu bingó. Skemmtilegir vinningar voru í boði og er óhætt að segja að nemendur og stafsfólk hafi skemmt sér vel. Hér eru myndir frá bingóinu.