Jóhanna Fönn 3 ára

Jóhanna Fönn 3 ára

 Í dag 23. nóvember á Jóhanna Fönn 3. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hennar.

Jóhanna Fönn málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Jóhanna Fönn öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.

Við óskum Jóhönnu Fönn og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.