Jóhanna Fönn 2. ára

Jóhanna Fönn 2. ára

Jóhanna Fönn varð 2. ára í dag 23. nóvember. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin tvö. Eftir sönginn bauð Jóhanna öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Jóhönnu Fönn og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.