Í dag 19. mars á Jóhann Nóel 4. ára afmæli og af því tilefni héldum við upp á daginn hans í dag.
Jóhann Nóel málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Jóhann Nóel öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Jóhanni Nóel og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.