Jakub Klimek varð 2. ára þann 5. janúar sl. Jakub málaði kórónuna sína sjálfur og fór út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins. Í ávaxtastund sungum við afmælissönginn fyrir Jakub og hann bauð börnunum á Skýjaborg upp á ávexti og hollar smákökur sem runnu ljúflega niður. Við óskum honum og fjölskyldu hans innilega til hamingju með 2. ára afmælið.