Ísabella Ruth 2. ára

Ísabella Ruth 2. ára

Ísabella Ruth verður 2 ára á morgun 7. september, við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í dag í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Ísabellu Ruth og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.