Á morgun 7 júlí verður Írena Rut 3 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í dag.
Írena Rut málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Írena Rut öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Írenu Rut og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.