Í dag 12 janúar á Ingólfur Oddi 4 ára afmæli og af því tilefni
héldum við daginn hátíðlegan hér í Krílakoti.
Ingólfur Oddi bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 4 og
bauð svo öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Ingólfi Odda og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.