Í dag þann 12. janúar er Ingólfur Oddi 3 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti í dag.
Ingólfur Oddi málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn ásamt fleiri lögum.
Eftir sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Ingólfi Odda og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.