Hugrún Jana 4. ára

Hugrún Jana 4. ára

Á mánudaginn þann 21. mars varð hún Hugrún Jana 4.ára, en þar sem hún var í fríi í tilefni dagsins héldum við upp á afmælið henanr á föstudaginn.  Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur. Eftir sönginn bauð Hugrún Jana öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Hugrúnu Jönu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.